Er að spá í að taka hana Önnu mína til fyrirmyndar og blogga,
hef ekkert að gera, er búin að vera að lagfæra síðuna okkar sara,
fer samt að taka mér eignarrétt á þessa síðu nema þú komir
með eina heita færslu! Hef ekki trú á öðru nema að þú gerir það
sæta!
Nennti ekki með skötuhjúunum (önnu og fred), á ískaffihús,
var frekar nörd heima að horfa á Barcelona leikinn og auðvitað
skoraði eiður smári!
geggjað hjá honum..!
En það styttist óðum
í það að ég mæti á klakann, get bara ekki beðið eftir að koma heim
til fjölskyldunnar minnar!!
:** og auðvitað til allra hinna...
víííí verður svoo gaman!!
og Brynjar bróðir bara
íþróttamaður ársins í Grundarfirði, ýkt stolt af honum, á þetta
fyllilega skiliið!

Hehe en síðasta djammið hérna hjá mér og önnu sló öllum djömmum
við sem við höfum farið á hérna, váááá hvað það var gaman hjá okkur
skvísunum, byrjuðum á því að fara í pool með
Fred (flinstone) og Elvis ( Presley) ?
hehe þar sem við
erum venjulega ógeðslega góðar í pool að okkar mati sökkuðum við á
móti strákunum og tapaði ég held ég öllum leikjunum nema kannski 2
þegar ég var með elvis í liði og þeir sem þekkja mig vita kannski
að ég hafi verið orðin NETT tapsár á tímabili.. hehe en það
reddaðist samt, ég og anna fórum á Muko um hálf tvö leitið ,
dönsuðum á fullu þangað til að Anna mín fékk sígarettu í sig og við
fórum eitthvað að tala við gelluna sem gerði þetta við hana og
neinei hún bara með móral hehe og byrjaði eitthvað að rífast við
okkur og endaði það með því að anna ýtir henni í burtu, svo endaði
þetta bara í böggi, gellan steig bara heavy fast með hælnum
sínum á mig og endaði á því að rífa í hárið mitt heheh og ef anna
hefði ekki verið þarna þá veit ég eiginlega ekki hvað ég hefði
gert, anna allavegana dró mig í burtu frá henni og það endaði með
því að við áttum dansgólfið , fengum alla til að dansa með okkur,
eignuðumst nýja vinkonu, sem hefur ábyggilega verið í kringum 40
ára eða eitthvað heheh og já endaði með því að gellan og vinkona
hennar fóru heim til sín.. hehe man ekki alveg hvað gerðist þarna á
milli og nenni ekki að skrifa það en getið lesið alla söguna á
blog.central.is/annathora heheh en eftir að gellurnar fóru dönsuðum
ég og anna eins og mófó og váá hef bara ekki skemmt mér jafn vel í
langan tíma!

Daginn eftir, skelltum við okkur í auchan ég og anna og var ég
að bíða í röð eftir að fá að borga en neinei kemur þá ekki einhver
fertug kelling og ryðst fram fyrir mig og ég segi henni svona 3
sinnum að ég sé á undan henni en hún bullar bara eitthvað á
frönsku, sjitt hvað mér langaði til að lemja hana heehhe en sleppti
því nú samt alveg!
var svo ógeðslega reið, hehe skil ekki hvað
kellingarnar eru leiðinlegar hérna, hafa eitthvað á móti okkur, mér
og önnu!!
een okkur er alveg sama hehehe
Er annars bara búin að vera að chilla hérna, er að fara að passa
frá fimmtudegi til sunnudags núna, á meðan þau skella sér til
Íslands...
verður bara stuð hjá mér og dúllunum mínum!
fór
síðan í klippingu og litun í boði elínar... takk fyrir mig aftur
!
og er mjög ánægð með hvernig það kom út, fáið bara að sjá það
þegar ég kem heim hehe ætla pottþétt alltaf til þessara konu sem
klippti mig á meðan ég er úti... hahah já gleymdi þegar við vorum á
djamminu á laugardaginn, bara í byrjun kvöldsins þá vorum við
eitthvað inn á klóstinu ég og anna og ég er eitthvað að leita í
töskunni minni og sé eitthvað blátt ljós í henni og ég bar awhat
hvað er þetta neinei hef ég þá bara ekki tekið heimasímann með mér
óvart... hahah sjitt hvað við fengum nett mikinn krampa
þaðsem
skeði ekki þetta kvöld bara..!!
Er líka komin með jólaþemað á síðuna og var aðeins að laga hana,
svoo dugleg... en er að spá í að hætta þessu bara , gangi ykkur
öllum vel sem eruð að byrja í prófum, hugsa til ykkar!!
og öfunda
ykkur ekki, hehehe 
Hlakka til að sjá ykkur eftir 16 daga!! lov ya :* 
Berglind Ósk Lúxskvísa